J-dag...Sigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Jæja kominn 27. október... ótrúlegt hvað þessi tími flýgur áfram. Það verða komin jól áður en maður veit af... er einmitt ekki búin að panta far heim um jólin... er að vinna í þeim málum. Stefni að flúgja heim í kringum 18. des og út aftur 2. eða 3. janúar.

Búin að keppa einn leik síðan ég skrifaði síðast... því miður tapaðist hann og spiluðum við mjög lélegan leik!

Græddi einn klukkutíma á sunnudaginn... en þá var klukkunni seinkað um einn tíma og vetrartíminn staðreynd... er sem sagt bara einum tíma á undan ykkur á klakanum núna.

Hápunktur þessarar viku verður á föstudaginn... en þá er J dagurinn... fyrir ykkur sem ekki vita hvaða dagur það er... er þetta dagurinn sem jólabjórinn mætir á svæðið með öllu tilheyrandi. Að því tilefni stefnum við nokkur í vinnunni að skella okkur í bæinn og bragða aðeins á honum Wink.

Annað ekki planað um helgina nema sunnudagsleikur að vanda... vonandi náum við að spila betri leik en síðast!

Jæja þar sem þetta er mjög innihaldslaus færsla og leiðinleg er best að binda enda á hana.

Venlig hilsen
SSSól

Ţađ er komiđ ađ ţví...Sigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Já langt síðan síðast... datt inn á síðuna áðan og sá að hún var klárlega mikið vanrækt! Tók þá ákvörðun að byrja að skrifa aftur... ástæða... jú hef þann ókost að vera óhemju gleymin og því mjög gaman að geta komið hingað og rifjað upp liðinn tíma Wink

En síðan ég skirfaði hingað síðast hafa engar stórvægilegir atburðir átt sér stað í mínu lífi. Bý ennþá í Penthouse og á ennþá rispaðan bíl.

Átti mjög gott sumarfrí á Íslandi og ótrúlegt en satt þá var mjög gott veður á suðurlandinu... en e-h minna um það á norðurlandinu og Mærudagarnir voru einmitt haldnir í ágætis bleytu! En var samt mjög gaman að hitta svona marga saman komna.

Annars leið sumarið mjög hratt... veðrið var mjög gott framan af sumri... en varla stytti upp í ágúst mánuði. September og október voru mjög ljúfir veðurfarslega. Hins vegar er haustið alveg komið í DK og óhætt að segja að kuldi og myrkur sé að einkenna morgnanna hérna núna og orðið mun erfiðara að drífa sig á fætur. Klukkunni verður einmitt seinkað um einn tíma núna um næstu helgi og vonandi verður þá orðið aðeins bjartara þegar maður þarf að rífa sig á fætur!

Lífið gengur sinn vanagang... vinnan gengur ágætlega, en reyndar búnar að vera töluverðar breytingar undanfarnar vikur... þ.e. að við vorum agent fyrir annað skipafélag sem var að hluta til í eigu Eimskips... en eftir endurfjármögnun félagsins var hlutinn seldur og hefur það haft þau áhrif að þetta fyrirtæki er að opna sína eigin skrifstofu hér í Aarhus... sem hefur þær afleiðingar að sjö starfsmenn hjá okkur eru að hætta og hluti af þeim að fara vinna hjá því. Þar á meðal ein sem ég hef verið að vinna mikið með... og verð ég að segja að ég á eftir að sakna hennar... en svona er lífið... það skiptist á skyn og skúrir.  En eins og staðan er núna veit ég ekkert hvernig þau mál fara hvort það verði ráðið í staðinn fyrir hana eða hvort við verðum bara látin vinna "hraðar". "Gaman" að segja frá það frá því fyrir ári hefur starfsfólki í minni deild fækkað úr 7 í 3 ef það verður ekki ráðið fyrir hana. Kreppan er hér eins og annars staðar í heiminum.

Íþróttalega séð hefur haustið verið mjög gott... handboltinn fer vel af stað... erum með fullt hús stiga eftir fyrstu 3 umferðirnar... veit að það er ekki mikið búið en þetta lofar góðu og hefur markaskorun verið með miklum sóma hjá okkur sem hefur oft verið vandamál. Þannig að ég vona að það gangi vel áfram.
Einnig keppti ég í fótboltamóti 10. október með vinnunni og gerðum við okkur lítið fyrir og unnum mótið... erum búnar að vera nálægt því undanfarin tvö ár og lögðum allt í sölunar að þessu sinni. Niðurstaðan var gull en afleiðingarnar voru nánast hjólastóll... þar sem lærin voru ekki alveg að meika þetta... en það tekur á að spila leik... kólna niður... spila leik... kólna niður... o.s.frv. Kepptum allt í allt 7 leiki og síðasti leikurinn var spennuþrunginn og þurfti að tvíframlengja hann! Deginum lauk síðan með lokahófi og verðlaunaafhendingu þar sem við fengum afhentan 20 kílóa farandbikar sem sómar sér vel á skrifstofunni. Kvöldinu lauk reyndar með skyndilegri ælupest og ákvað ég að drífa mig heim... svona til að toppa helgina var hringt í mig kl 11.40 morguninn eftir og spurt hvar í andsk... ég væri... ég ætti að hafa verið mætt upp í íþróttahús kl 11 þar sem væri æfingarleikur kl 12. Aðeins miskskilningur á milli mín og þjálfarans... en klárlega hans sök... en ég dreif mig samt á fætur og spila tilgangslausasta æfingarleik fyrir annað liðið á móti því þriðja og gat varla hreyft mig fyrir sársauka. Gaman að segja frá því að þá erum við "aðeins" með fjögur kvenna lið í Hasle. Þannig að ekki vantar mannskap hjá okkur.

Ég hef verið óvenju róleg á djammsviðinu... þó svo að maður skelli sér alltaf annað slagið. Það sem toppaði hins vegar haustið á skemmtanasviðinu voru stórkostlegir tónleikar með Coldplay... vægast sagt stórkostlegir tónleikar. Óhætt að segja að enginn hafi verið svikinn sem fór á þessa tónleika!

Jæja ætla að halda áfram að rita hér á næstunni... þannig að ef e-h slysast inn á síðuna... þá fylgist með!

Vil enda þessa færslu á að skila kveðju til pabba... en í dag eru 11 ár frá því að hann kvaddi þennan heim og fór á fund Guðs.

Venlig hilsen
SSSól

Brjálađ álagSigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Eins og titillinn gefur til kynna þá er búið að vera brjálað álag undanfarnar vikur... svo mikið að ég hef ekki haft tök á að hripa niður orð hér.

Það sem helst hefur verið tekið sér fyrir hendur fyrir utan vinnu er að njóta sumarsins og alls því sem því fylgir. Maí mánuður var með eindæmur góður veðurfarslega. Hver helgi hefur verið þéttskipuð undanfarið, þar má nefna Eurovision teiti, lokahóf í handboltanum, þrítugsafmæli, barnaafmæli í fleirtölu, veiðiferð og sumarhátíð í vinnunni...  og svo bara almenn skemmtun. Einnig hef ég látið krafta mína skína í barnapössun.

Þetta hefur reyndar tekið sinn toll og leti gefur því miður gert vart við sig á ræktargenunum. En ef ég næ að vakna á morgnanna þá er fátt betra en að skella sér í rætina fyrir vinnu.

Júnímánuður hefur hins vegar ekki verið jafn góður veðurfarslega séð... en skv spámönnum er von á góðu veðri næstu daga.

Það styttist alltaf í sumarfríið og er rétt mánuður í að það hefjist... en ég flýg sem sagt til Íslands þann 16. júlí og heim aftur þann 8. ágúst... sem þýðir rúmlega 3 vikur á klakanum. Fyrsta vikan verður nýtt í sumarbústaðarferð í Grímsnesinu. Síðan verða Mærudagar haldnir hátíðlegir í fyrsta skipti í fjögur ár. Annað er nú ekki planað að svo stöddu en ég verð væntanlega ekki í vandræðum með að eyða þessum dögum og þessi dvöl verður sennilega búin áður en ég veit af.

Gaman að segja frá því að þann 13. júní átti ég 5 ára útskriftarafmæli frá Háskólanum á Akureyri, ég var að sjálfsögðu ekki á staðnum til að samfagna með samnemendur frekar en sjálfa útskriftina á sínum tíma. En þá var ég eins og núna stödd í Danmörku... reyndar í öðrum tilgangi, en þá var ég í æfingarferð með HSÞ liðinu. En vá hvað tíminn er fljótur að líða... ekki það að ég hef sosum alveg gert ýmislegt á þessum fimm árum... þar af er ég búin að búa hér úti í rúmlega tvö ár.

Svona rétt í lokin þá verð ég að koma með fréttir af bílnum mínum... en eins og áður hefur komið fram hefur það ókosti að búa í miðbænum. Jájá við erum að tala um það að það eru komnar tvær nýjar rispur á bílinn... mér til mikillar ánægju! Hvað er að fólki? En nenni ekki að pirra mig endalaust á þessu... ætla að prófa að bóna hann með svona litabóni... alla vegana hefur mér verið sagt að það sé hægt að kaupa það. Vonandi næ ég að hylja þær.

Hvað er annars í fréttum hjá ykkur?

Jæja þetta duga að sinni.

Venlig hilsen
SSSól

9. maí 2009Sigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

E-h hefur lítið verið ritað hér inn undanfarið... en nú er gaman að segja frá því að það eru tvö ár liðin frá því að ég flutti til Danmerkur og skv samningi er eitt ár eftir. En ég kom hingað út með það í huga að vera hér í þrjú ár. Eins og staðan er í dag er ekkert sem freistar manns á Íslandi. Auðvitað saknar maður fjölskyldu og vina en vinnulega séð er ekki mikið um fína drætti. Þannig að það er spurning hvað maður gerir...

En já ég skrapp til Íslands um daginn og var í rétt rúma viku, var þar á vegum vinnunnar og hitti marga viðskiptavini okkar og sennilega óþarfi að nefna það að kreppan hafi verið aðalumræðuefnið... já og auðvitað kosningarnar sem voru einmitt meðan ég var á Íslandi. Ég var búin að kjósa hér úti áður en ég fór til Íslands... þannig að það var ekki hægt að hafa áhrif á mitt atkvæði.
Náði líka að hitta nokkra vini, gisti hjá Sillu og Hjalta, fór í mat til Særúnar og líka til Gunnars og Rakelar. Brunuðum á Selfoss og náði að sjá Ottósson og fjölskyldu Smile. Skellti mér á smá djamm og hitti Elsu...  En eins og við var að búast tók þessi ferð fljótt enda og fyrr en varir var ég komin heim aftur.

Síðan hefur lífið gengið sinn vanagang... vinna virka daga og djamm um helgar Wink Búin að vera þriggja daga helgi þessa helgina vegna þess að í gær var Stóri Bænadagurinn... en það er sem sagt frídagur hér í DK. Hann var nú að mestu notaður í afslöppun, en eftir vinnu á fimmtudaginn hittumst við nokkur úr vinnunni og skelltum okkur í pool. Það var að venju gaman. Stefnan er síðan sett á Harlev í kvöld en er þar boðin í kvöldverð hjá Stefáni og Oddnýju... klikka aldrei matarboðin þar á bæ.

Jæja þar sem það les þetta hvort sem er enginn þá læt ég þetta duga að sinni.

Venlig hilsen
SSSól

Páskar 2009Sigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Jæja þá eru páskarnir að klárast, búið að vera mjög góðir páskar. Var bongóblíða allan tíman og niðurstaða smá bruni á húð... en ekkert alvarlegt. Var ekki alveg að meðtaka blíðuna svona varnarlega séð til að byrja með Cool.

Skellti mér tvisvar á djammið, fór í fullt af matarboðum, labbaði um bæinn í góða veðrinu og síðast en ekki síst skellti mér í messu á Páskadagsmorgun, ætlaði að hitta hana Möggu drotningu, en e-h hluta vegna lét hún ekki sjá sigUndecided Skilst samt að hún sé vön að láta sjá sig í Dómkirkjunni á Páskadagsmorgun.

Ykkur til upplýsinga þá unnum við í handboltanum einnig síðasta leikinn sem gulltryggði okkur áframhaldandi veru í deildinni, enduðum í 9. sæti af 12, 6 stigum fyrir ofan liðið í 10. sæti sem þarf að spila um laust sæti í deildinni. Vorum mjög glaðar með að þurfa ekki að spila um það.

Það er tæp vika í brottför til Íslands, já fyrir ykkur sem ekki vita það er ég að fara til Íslands 19. apríl og verð í Reykjavík í viku. Ástæða fararinnar er vinnutengd og verð ég í vinnunni mán-mið, síðan er sumardagurinn fyrsti á fimmtudeginum. Er síðan búin að taka frí í vinnu föstudaginn og mánudaginn vikunni eftir en ég flýg út á mánudeginum. Það verður gaman að komast aðeins til Íslands, en þetta er heldur stuttur tími til að fara norður þannig að það verður að bíða þangað til í sumar. En stefnan er sett á klakann aftur í júlí mánuði.

Jæja ætla að halda áfram að gera ekki neitt, góðar stundir.

Venlig hilsen
SSSól

Sumariđ er tíminn...Sigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Jæja þá er sumartíminn mættur á svæðið. Er sem sagt orðin 2 tímum á undan ykkur á klakanum. Búið að vera bongóblíða í dag... nú er reyndar smá rigning... bara svona "hitaskúr"! Reyndar týpískt að það sé farið að rigna splæsti nebbla í rándýrum þvotti fyrir drossíuna mína.

Hélt á tímabili í nótt að ég myndi hósta úr mér lungunum... vá hvað ég var ekki hress með ástandið... ætlaði aldrei að sofna. En það tókst sem betur fer á endanum. Þegar ég vaknaði í morgun vorum við svo búin að "tapa" einum klukkutíma, því jú sumartíminn er byrjaður.

Annars var ég að keppa í dag... mjög mikilvægur leikur sem við náðum að sigra sem nánast tryggir okkur öruggt sæti í þessari deild. Erum 4 stigum á undan liðinu fyrir neðan okkur og þær eiga eftir tvo leiki og við einn. Þannig að ef þær tapa í dag eða gera jafntefli erum við öruggar. Spiluðum loksins mjög góðan leik yfir heildina, en ég átti sosum ekkert sérstakan leik, en það slapp til.

Átti einmitt afmæli síðasta mánudag og átti góðan dag... er samt ekki alveg að trúa því að ég sé orðin 28. ára gömul... hvert fóru öll þessi ár? Held að ég hafi aldrei fengið jafn margar afmæliskveðjur, þökk sé Facebook... já og ykkur sem óskuðu mér til hamingjuWink Takk fyrir kveðjurnar.

Síðan eignuðust Elfa og Ottó lítinn prins á föstudaginn, innilega til hamingju með það Smile Ég var á því allan tímann að það myndi mæta á svæðið prins.

Abbababb ... það eru haglélarigning úti núna... ekki alveg að gera sig.

Jæja læt þetta duga að sinni.
Venlig hilsen
SSSól

Norđaustan fimmtánSigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Jæja e-h er djúpt á bloggfærslum á þessari síðu... en nú hefur eigandinn ákveðið að rita niður nokkur orð. Eru hvort sem er allir hættir að nenna að lesa blogg og blogga... nú snýst allt um Facebook.

Síðan ég skrifaði síðast er lítið markvert búið að gerast... lífið gengur sinn vanagang... reyndar búið að fjölga í Penthouse. En ég skrapp sem sagt í IKEA eftir vinnu í dag og fjárfesti í öðru blómi... þar sem fyrri reynsla hefur gefist svo vel. Það er meira að segja komið að þeirri stund að Guðrún hefur stækkað svo gríðarlega hjá mér.. reyndar á kostnað Tómasar... að hún verður nú að fá sitt eigið pláss og Tómas verður að fá nýtt rými.Þannig að það var einnig fjárfest í heimkynnum fyrir Tómas.

Kom inn á það í síðustu færslu að ég hafi afrekað það að láta skipta um dekk á bílnum... var reyndar sagt að eitt dekkið væri skakkt, þannig að það kom að sjálfsögðu að því síðasta laugardag að ég kom að bílnum punkteruðum. Fannst e-h veginn að þetta væri klárlega karlmannsverk... þannig að ég fékk Sigga til að skipta um dekk fyrir mig, sem hann leysti að sjálfsögðu vel úr hendi. Á reyndar eftir að fara með dekkið og athuga hvort hægt er að laga það... annars verð ég að splæsa í tvö ný dekk. Stefnan er sett á það verkefni á mánudaginn... læt ykkur vita síðar um framhald þeirrar sögu.

Annars hefur líf mitt snúist í kringum einn ákveðinn hlut undanfarið og á að gera það áfram.

Er síðan búin að fá þriggja vikna sumarfrí í sumar... síðustu tvær vikurnar í júlí og fyrsta í ágúst. Þá er stefnan sett á klakann og vonandi næ ég að hitta sem flesta... alla vega er stefnan sett á Mærudaga... vona alla vega að þeir verði haldnir hátíðlegir sem fyrr. Hef ekki verið á Mærudögum síðustu þrjú ár og tel að það sé kominn tími til að kíkja á þá.

Handboltinn gengur sæmilega... erum búnar að fá þrjú stig úr síðustu tveimur leikjum... þannig að ef fer sem áhorfir dugar okkur að ná fjórum stigum úr síðustu sex leikjunum til að halda okkur upp í þriðju deildinni... sem er svo sannarlega markmiðið. Það eru einmitt leikir næstu sex sunnudaga ef mér skjátlast ekki... bara gaman að því.

Stefnan er sett á búðarrölt örlý in the bítið á morgun... er að fara í afmælismatarboð hjá Ásrúnu annað kvöld þannig að markmiðið er að finna afmælisgjöf handa henni.

Jæja þar sem þetta er orðin ótrúlega innihaldslaus og leiðinleg færsla er best að binda endi á hana.

Venlig hilsen
SSSól

Henne StrandSigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Jæja langt síðan ég skrifaði hér inn... búið að vera bölvað álag.

Síðan ég skrifaði hér inn síðast er HM karla í handbolta búið... þar sem danirnir voru ekki að spila sérstaklega gott mót... en þó betur en á OL.

Handboltinn hjá mér hefur því miður ekki verið upp á marga fiska... búnar að keppa tvo í deildinni... á móti tveimur efstu liðnunum í deildinni. Spiluðum reyndar mjög góðan leik á móti Brabrand sem er í öðru sæti og vorum óheppnar að tapa fyrir þeim. Hins vegar var annað upp á teningnum þegar við spiluðum á móti Odder sem er í efsta sæti... þar hreinlega kúkuðum við upp á bak. Kepptum síðan einn bikarleik í síðustu viku og þá töpuðum einnig... spilaði einmitt minn versta leik í langan tíma... alltaf jafn gaman að spila illa.

Búið að vera mannekla í vinnunni undanfarið þannig að það hefur verið meira að gera. Það er reyndar bara fínt... þá líður tíminn hraðar.

Fór tvisvar í bíó í síðustu viku, fór á Benjamin Buttons... sem er bætheway... mjög góð mynd... var búin að sjá sýnishorn á henni fyrir löngu og var ekkert að lítast á þessa mynd... en var alls ekki fyrir vondbrigðum. Hin myndin sem ég sá er Revolutionary Road... átti hins vegar von á mjög góðri mynd... en var ekki alveg að standast væntingarnar... fannst hún allt of langdregin... en alveg ágætis mynd.

Var að koma heim eftir að hafa varið helginni í sumarbústað á vesturströnd Jótlands. Ég og Maggi brunuðum sem sagt eftir vinnu á föstudaginn. Siggi, Hrabba og co búin að búin að koma sér fyrir í bústaðnum þegar við komum, ásamt Gerði, Davíð og Halldóri bróðir Sigga. Helgin var síðan að mestu notuð í rólegheit og spilamennsku. Einnig var tækifærið notað til að grilla í myrkrinu... gerist ekki betra.

Er í fríi í dag og er ég búin að gera hluti sem ég hef trassað í marga mánuði... fór sem sagt áðan og lét skipta um dekk á bílnum... þegar ég fór í haust í ástandsskoðun þá átti ég að skipta um dekk... fjárhagurinn var ekki alveg að leyfa það á þeim tímapunkti þannig að það var sett á hold. En ég var samt búin að kaupa lítið notuð dekk af einni sem var að vinna af mér. En málið var að þetta voru ekki eins felgur þannig að þess vegna var ekki búið að henda þeim undir... vá leiðinleg saga... en alla vega komin ný dekk undir bílinn... og að því tilefni splæsti ég á þvott á drossíuna.

Annars hef ég sosum ekki mikið að segja... vildi bara láta vita að ég væri á lífi. Þannig að ég læt þetta duga að sinni.

Venlig hilsen
SSSól

Boltafélagiđ GeirfinnurSigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Jæja langt síðan ég hef ritað e-h hér inn...

Vil byrja á því að fara yfir gang mála á handboltavellinum... það var klárlega stefnan að halda áfram á þeirri braut sem við vorum komnar á eftir fyrsta leik ársins. Það náðist því miður ekki í næsta leik... en þar var sóknin aðeins að stríða okkur í seinni hálfleik. Í hálfleik var staðan 12-12... vorum að spila ágætlega í fyrri hálfleik... en fyrsta mark okkar í seinni hálfleik lét ekki sjá sig fyrr en eftir 11 og hálfa mínútu! Sem betur fer var svo góður markmaður í marki að hitt liðið var bara búið að skora tvö mörkWink Verst var að annað markið okkar kom ekki fyrr en öðrum 11 mínútum seinna! En eftir þetta náðum við þó að spila okkar rétta bolta... en það var því miður of seint og við enduðum með að tapa með tveimurYell

Jæja nóg um þetta... annars er HM í hanbolta karla að fara að hefjast á morgun... verst að silfurdrengirnir eru ekki með... þannig að ég stefni á að halda með samlöndum mínum... vonandi gera þeir ekki í buxurnar eins á OL...

Í dag var ég að vafra e-h á netinu og þá fann ég mjög góða síðu www.bg.blogsentral.is fyrir ykkur sem vitið ekki um hvaða síðu er að ræða... þá er ég að sjálfsögðu að tala um heimasíðu Boltafélagsins Geirfinns... þetta er klárlega besta liðið sem maður hefur leikið fyrirSealed ... og ekki skemmdi mannskapurinn fyrir. Spurning hvort e-h tímann verði hægt að halda uppi heiðri þessa félags og taka einn knattspyrnuleik!
Eitt vakti athygli mína á síðunni... en þar kom fram að undirrituð brá sér erlendis á meðan leikar stóðu sem hæst hjá félaginu... þá var títt talað um hversu mikið fólk saknaði mín... finnst ég e-h veginn ekki vera eins mikið vör við þetta þessa daganaUndecided Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort fólk sakni mín hreinlega ekki neitt... sé einfaldlega fegið að ég sé ekki lengur á klakanumCry ... neita hins vegar að trúa því... því ég sakna mikið vina minna... þannig að ég skora á ykkur að láta ljós ykkar skína í commentunum Smile

Jæja ætla að hætta þessu væli... annars er von á góðri helgi framundan... reyndar lítið planað á morgun... en laugardagurinn á að fara í búðarrölt og um kvöldið er síðan komið að matarboði hjá Magga... en kallinn átti afmæli nú í vikunni og bíður að því tilefni til veislu. Síðan er komið að alvöru lífsins á sunnudaginn... en þá er að sjálfsögðu leikur hjá mér.

Held að þetta sé orðið gott í bili...

Venlig hilsen
SSSól






Komin heim í kotiđSigurbjörg Hjartardóttir

Heil og sæl

Jæja þá er maður mættur í Veldið aftur. Sem betur fer ekkert búið að brjótast inn hjá mér og allt á sínum stað.

Ótrúlegt hvað frídagarnir eru alltaf mikið fljótari að líða heldur en vinnudagarnar... skil hreinlega ekkert í þessu. Frá því að ég skrifaði hér inn síðast er ég sem sagt búin að skella mér til Íslands og halda bæði jól og áramót þar hátíðleg með famelíunniLaughing
Náði síðan að hitta slatta af vinum og eiga með þeim góðar stundir. Skellti mér í Bárðardalinn þar sem ég fór í sextugsafmæli. Fór austur á Egilsstaði og hitti þar fyrir bróður minn og fjölskyldu... fékk loksins að sjá hann Kára minn Wink. Ég verð að segja að nafnið fer honum gríðarlega vel. Náði því miður ekki að hitta alla fjölskylduna því ég hitti Hjört ekkert... það verður að bíða betri tíma... rétt sá Sylvíu að störfum í Hagkaup... þar sem hún okraði á manni við búðarkassann!!!
Náði einnig að keppa einn handboltaleik... en það var áskorun frá núverandi meistaraflokki KA/ÞÓR gegn okkur "gömlu" kempunum. Að sjálfsögðu sigur okkar megin... sigurgangan heldur áfram því ég er rétt komin heim eftir sigur í bikarleik. Eftir áskorunina bauð Hlynur okkur heim í mat þar sem beið okkar þvílíkur veislumatur og drykkir. En ég þurfti nú að kveðja það teiti fljótlega og bruna aftur á Víkina fögru.

Það er því óhætt að segja að ferðin til Íslands hafi verið mjög góð... enda ekki tilefni til annars.

En allt tekur enda og ég þurfti að yfirgefa Víkina 2. janúar en ég átti flug út 3. janúar með morgunfluginu... gaman að segja frá því að þegar við vorum að bruna út á flugvöll kl 05.30 á laugardagsmorgun var hitastigið hvorki meira né minna en 9 gráður.... síðan þegar við lentum á Kastrup... var ca. mínus 4 gráður. Þannig að það munur að búa á hitabeltiseyjunni Íslandi Cool

Kom sem sagt til Árósa aftur um kvöldmatarleyti á laugardeginum en þá skellti ég mér í matarboð til Elvu... en hún var með mér í þorrablótsnefnd í fyrra... og þar var samankomin nefnd síðasta árs. E-h er tvísýnt með þorrablótið í ár... en þátttaka hefur ekki verið jafn góð og undanfarin ár... en þar er það líklega kreppa gamla sem er að grípa inn í.
Vaknaði síðan á sunnudaginn með þessa ógeðslegu hálsbólgu... ekki ánægð með stöðu mála... en ástandið átti bara eftir að versna og gærdagurinn var ömurlegur... þegar ég kyngdi var eins og ég væri að kyngja rakvélablöðum... hef sosum ekki gert það en get ímyndað mér hvernig sú tilfinning erWink

En eins og áður sagði var ég að koma heim úr sigurleik... og stefnan er sett á tvo sigurleiki í viðbót næstu daga... en við eigum að keppa bæði fimmtudag og síðan á sunnudag... þannig að það er gríðarlegt álag.

Er að hugsa um að láta þetta duga að sinni... en vil bara nota tækifærið og þakka öllum sem ég hitti á Íslandi kærlega fyrir samveruna og hlakka til að hitta ykkur næst. Svo er upplagt svona í kreppunni að skella sér til útlanda... og þá væri ekki vitlaust að láta Aarhus verða viðkomustað... það er alltaf "heitt" á könnunni í Penthouse.

Venlig hilsen
SSSól

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Sigurbjörg Hjartardóttir
  • Stađur: Danmörk
  • Heimilisfang: Nřrregade 32, 4 sal
  • Annađ: GSM: 004525722686 Heimasími: 4960355